Kafla 75
1 Til söngstjórans. Lag: Spill eigi. Asafs-sálmur. Ljóð. (75:2) Vér lofum þig, ó Guð, vér lofum þig, og þeir er ákalla nafn þitt, segja frá dásemdarverkum þínum.
2 (75:3) "Þegar mér þykir tími til kominn, dæmi ég réttvíslega.
3 (75:4) Þótt jörðin skjálfi með öllum þeim, er á henni búa, þá hefi ég samt fest stoðir. [Sela]
4 (75:5) Ég segi við hina hrokafullu: Sýnið eigi hroka! og við hina óguðlegu: Hefjið eigi hornin!
5 (75:6) Hefjið eigi hornin gegn himninum, mælið eigi drambyrði hnakkakerrtir!"
6 (75:7) Því að hvorki frá austri né vestri né frá eyðimörkinni kemur neinn, sem veitt geti uppreisn,
7 (75:8) heldur er Guð sá sem dæmir, hann niðurlægir annan og upphefur hinn.
8 (75:9) Því að bikar er í hendi Drottins með freyðandi víni, fullur af kryddi. Af því skenkir hann, já, dreggjar þess súpa og sötra allir óguðlegir menn á jörðu.
9 (75:10) En ég vil fagna að eilífu, lofsyngja Jakobs Guði.
10 (75:11) Öll horn óguðlegra verða af höggvin, en horn réttlátra skulu hátt gnæfa.